Framsókn í Árborg byggt á samvinnu
Framsókn í Árborg stendur fyrir ábyrgri uppbyggingu, samheldnu samfélagi og skýrri framtíðarsýn. Við erum samvinnu- og félagshyggjufólk og trúum að bestu lausnirnar finnist þegar fólk vinnur saman að markmiðum samfélagsins.
Kjörorð Framsóknar Vinna, Vöxtur, Velferð endurspegla þessa sýn og eru leiðarljós í allri stefnumótun okkar. Við leggjum áherslu á að ráða óháðan framkvæmdastjóra sem vinnur í nánu samstarfi við íbúa og kjörna fulltrúa með hagsmuni allra að leiðarljósi.

Okkar helstu áherslur
Lækka skatta
Vinda ofan af skattahækkunum og lækka fasteignaskatt á íbúðar- og atvinnuhúsnæði.
Ábyrg fjármálastjórn
Sýna ábyrga fjármálastjórn, með skýrri framtíðarsýn og áætlun um uppbyggingu og viðhald mannvirkja og innviða.
Eyða bið eftir þjónustu
Allir eiga rétt á jöfnu aðgengi og þjónustu á réttum tíma. Bið eftir þjónustu er ekki ásættanleg og fyrirsjáanleiki í daglegu lífi skiptir máli.
Skýr framtíðarsýn – hættum að plástra
Okkar meginmarkmið er að Árborg verði sveitarfélag sem hugsar fram í tímann.
- Innleiða markvissar langtímastefnur í mikilvægum málaflokkum í stað skammtímalausna
- Leggja fram 20 ára áætlanir í innviðauppbyggingu sveitarfélagsins
- Tryggja að uppbygging sé skipulögð en ekki viðbragðsdrifin
- Þjónusta þarf að fylgja auknum vexti, þvert á alla málaflokka sem sveitarfélagið sinnir
Stefnumál B listans
Veldu málefni til að lesa um stefnu og aðgerðir Framsóknar í Árborg.
Traust og skilvirk stjórnsýsla er forsenda góðrar þjónustu við íbúa. Við viljum sveitarfélag þar sem ákvarðanir eru skýrar, gagnsæjar og byggðar á jafnræði. Markmiðið er að tryggja að fjármunir nýtist betur, þjónusta sé aðgengileg og ákvarðanir séu teknar á skýran og ábyrgan hátt. Ábyrg fjármál - minni álögur.
- Lækka fasteignaskatt á heimili og fyrirtæki
- Jafna leikinn, með einföldun á gjaldskrá sveitarfélagsins hvað varðar húsnæðisuppbyggingu, t.d. með því að afnema byggingarréttargjald
- Tryggja að fjármunir sveitarfélagsins nýtist betur með skýrri forgangsröðun og langtímamarkmiðum
- Einföldun ferla og að samskipti við sveitarfélagið séu skýr og aðgengileg
- Tryggja að skipulag, þjónusta og ákvarðanir taki mið af vexti sveitarfélagsins og breyttum þörfum íbúa
- Bæta upplýsingagjöf til íbúa og gagnsæi í ákvarðanatöku
- Tryggja jafnræði í stjórnsýslu og sköttum fyrir fyrirtæki og íbúa
- Ákvarðanataka sem varðar ungmenni og eldra fólk fari til umsagnar þeirra ráða
- Styðja markvisst við starfsfólk sem er í sí- og endurmenntun
- Tryggja að vellíðan starfsfólks sé hluti í allri stefnumótun
Atvinnulíf er grunnur að öflugu samfélagi. Í Árborg viljum við skapa umhverfi þar sem fyrirtæki geta vaxið, með skýru skipulagi, góðum innviðum og skilvirkri þjónustu. Mikilvægt er að fyrirtæki upplifi sveitarfélagið sem samstarfsaðila, ekki hindrun.
- Setja upp aðgerðardrifna atvinnustefnu fyrir sveitarfélagið í samstarfi við nærliggjandi sveitarfélög
- Lækka fasteignagjöld á atvinnuhúsnæði
- Hvetja til atvinnuuppbyggingar, jafna leikinn og afnema byggingaréttargjöld á fyrirtæki
- Efla atvinnulífið með því að kynna sveitarfélagið betur og kosti þess að flytja reksturinn í Árborg
- Vera leiðandi í ferðaþjónustu og hafa metnað til að gera Árborg að ferðamálamiðstöð Suðurlands
- Opna á samtal um fleiri opinber störf og stofnanir ríkisins til sveitarfélagsins
- Stuðla að auknum stuðningi við frumkvöðla og ný fyrirtæki í sveitarfélaginu
Sveitarfélagið fer með skipulagsvaldið og því mikilvægt að sveitarfélagið leiði skipulagsbreytingar í góðu samstarfi við einkaaðila. Staðargæði skipta máli til að tryggja lífsgæði íbúa nýrra hverfa til framtíðar.
- Markviss uppbygging innviða, leik- og grunnskóla sem og aðra þjónustu í þágu íbúa
- Aðlaga sorphirðu- og þjónustugjöld betur að þörfum íbúa með auknum sveigjanleika
- Tryggja stöðugleika í veitumálum í sveitarfélaginu og setja aukinn kraft í jarðhitaleit. Grundvallarréttur íbúa er greiður aðgangur að heitu og köldu vatni
- Stuðla að því að aðalskipulag Árborgar verði í stöðugri endurskoðun með tilliti til þróunar
- Framsókn í skipulagi með því að setja af stað svæðisskipulag fyrir alla Árnessýslu með það að markmiði að svæðið verði skilgreint sem eitt atvinnu- og búsetusvæði
- Tryggja að íbúar hafi góðan aðgang að náttúru og útivist og að uppbygging skipulags styðji við heilbrigt og gott líf
- Standa vörð um græn svæði og efla þau sem vettvang til útivistar og samveru
- Bæta, þróa og viðhalda leiksvæðum með áherslu á öryggi og aðgengi
Sköpum umhverfi þar sem öll börn og fjölskyldur hafa raunveruleg tækifæri til þátttöku, óháð búsetu eða aðstæðum.
- Þarfagreining verði grunnur ákvarðanatöku
- Skýr forgangsröðun og framtíðarsýn í uppbyggingu og viðhaldi mannvirkja
- Skoða framtíð íþróttasvæðis við Engjaveg í samstarfi við hagaðila
- Bæta íþróttaaðstöðu í íþróttahúsinu á Stokkseyri
- Tryggja að félagsmiðstöð verði starfrækt í öllum grunnskólum
- Efla vettvangsstarf til að ná betur til barna- og ungmenna í þeirra nærumhverfi
- Jafna aðgengi barna að frístundum óháð búsetu og aðstæðum
- Tryggja tómstundaakstur milli þéttbýliskjarna með starfsmanni
- Efla tækifæri ungs fólks til virkni í samstarfi við Elju virkniráðgjöf og fleiri aðila
- Hefja skipulag á uppbyggingu fjölskyldu- og samfélagsmiðstöðvar, sem er framtíðin
- Tryggja vöxt og öryggi hestamennsku í samráði við hagaðila
- Styðja við uppbyggingu og þátttöku í fjölbreyttu íþrótta-, tómstunda- og frístundastarfi
- Hækka frístundastyrk og tryggja hann öllum börnum 0–18 ára til að stuðla að jöfnum tækifærum til þátttöku
Markmiðið er að börn og fjölskyldur upplifi samfellda þjónustu sem styður þau á hverju stigi og að skólastarf í Árborg sé framúrskarandi og eftirsóknarvert.
- Stytta biðlista eftir leikskólaplássi með markvissri uppbyggingu
- Tryggja að starfsskilyrði kennara styðji við faglegt starf og farsælt skólasamfélag
- Móta skýra framtíðarsýn fyrir skólamál á Ströndinni með áherslu á að bæta aðstöðu og tryggja að hún mæti þörfum nemenda og starfsfólks
- Tryggja að skólastarf haldi í við vöxt og þróun samfélagsins
- Efla snemmtækan stuðning í leik- og grunnskólum
- Bæta úrræði fyrir börn með fjölbreyttar þarfir og ólíkan bakgrunn
- Efla forvarnir í skóla- og frístundastarfi með áherslu á vellíðan, geðheilsu og öryggi barna
- Styrkja samstarf skóla-, frístunda- og íþróttastarfs í þágu barna
- Tryggja foreldrum skýra upplýsingagjöf og aðgengi að stuðningi
- Bæta og jafna aðstöðumun milli stofnana sveitarfélagsins
- Bæta aðstöðu Setursins með uppbyggingu húsnæðis og þróun útisvæðis sem mætir þörfum fatlaðra barna
Velferð er ein af grunnstoðum samfélagsins og snertir líf allra íbúa. Með markvissum aðgerðum, góðu samstarfi og skýrri sýn styrkjum við þjónustu sem mætir fólki þar sem það er statt og styður það áfram. Við viljum styðja við velferðarþjónustu sem byggir á snemmtækri íhlutun, góðu aðgengi og úrræðum sem mæta ólíkum þörfum.
- Bæta aðgengi að stuðningi og tryggja að fólk fái aðstoð þegar hennar er þörf. Sérstök áhersla verður lögð á börn og ungmenni og að grípa snemma inn í þegar þörf er á
- Tryggja að fjölskyldur fái stuðning og ráðgjöf samhliða þjónustu við börn, þannig að horft sé til fjölskyldunnar í heild
- Tryggja betri samfellu milli skóla, frístunda og velferðarþjónustu svo fjölskyldur upplifi eina heild í stað margra aðskildra kerfa
- Tryggja að fatlað fólk og einstaklingar með fjölbreyttar stuðningsþarfir hafi aðgang að þjónustu, stuðningi og tækifærum til þátttöku í samfélaginu
- Stuðla að uppbyggingu búsetuúrræðis fyrir fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir
- Nýta velferðartækni til að styrkja sjálfstæði íbúa og bæta þjónustu
- Vinna með atvinnulífinu að því að skapa raunhæf tækifæri fyrir ungmenni með skerta starfsgetu og sérþarfir til að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði
- Tryggja fagfólki góð starfsskilyrði og skapa starfsumhverfi sem styður við faglegt starf, dregur úr álagi og gerir starfsfólki kleift að veita góða þjónustu
- Efla og tryggja að samráðsvettvangur fatlaðs fólks hafi skýrt hlutverk og áhrif á ákvarðanatöku
- Tryggja íbúum af erlendum uppruna fastan vettvang til áhrifa og þátttöku í stefnumótun sveitarfélagsins
Eldra fólk er stór og vaxandi hópur í Árborg sem hefur lagt mikið af mörkum til samfélagsins og á skilið þjónustu og umhverfi sem styður við góð lífsgæði. Með auknu samráði, markvissum aðgerðum og nánu samstarfi við eldra fólk og öldungaráð er hægt að þróa þjónustu sem raunverulega mætir þörfum hópsins. Framsækin stefna í málefnum eldra fólks byggir á virðingu, virkni og tækifærum til að auka sjálfstæði.
- Tryggja fjölbreytta búsetukosti fyrir eldra fólk, með áherslu á öryggi, aðgengi, gæði og nálægð við þjónustu og að þessi sjónarmið séu höfð til hliðsjónar þegar ákvarðanir eru teknar um uppbyggingu húsnæðis
- Tryggja gott aðgengi að skýrum og aðgengilegum upplýsingum um þjónustu, réttindi og félagsstarf fyrir eldra fólk og aðstandendur þeirra
- Efla dagdvöl og félagsstarf sem styður við virkni, félagslega þátttöku og dregur úr einmanaleika
- Styrkja heimahjúkrun og stuðningsþjónustu þannig að fólk geti búið sem lengst heima og notið góðra lífsgæða
- Leggja aukna áherslu á forvarnir og heilsueflingu, meðal annars með aðgengi að hreyfingu, ráðgjöf og snemmtækum úrræðum sem taka mið af ólíkum þörfum
- Tryggja góð starfsskilyrði fagfólks í þjónustu við eldra fólk til að auka gæði, stöðugleika og fagmennsku í þjónustunni
- Efla samstarf við félög eldri borgara og nýta þekkingu þeirra við stefnumótun og þróun þjónustu
- Tryggja að öldungaráð sé virkur samráðsvettvangur sem hefur raunveruleg áhrif á ákvarðanatöku innan sveitarfélagsins
Menning og listir eru forsenda góðs samfélags, þær skapa líf, styrkja tengsl á milli íbúa og gera samfélagið að auðugu samfélagi fyrir íbúa og atvinnulíf. Við viljum skapa samfélag þar sem menning og listir blómstra og íbúar taka virkan þátt.
- Tryggja aðgengi allra íbúa að menningu og listum, óháð aldri, uppruna, búsetu eða félagslegum aðstæðum
- Stuðla að fjölbreyttu menningarlífi með því að styðja við viðburðahald viðsvegar um sveitarfélagið
- Skapa betri aðstæður og rými fyrir listsköpun og viðburðahald með fjölbreyttri notkun húsnæðis í eigu sveitarfélagsins
- Tengja menningu betur við skóla, frístundir og samfélagsstarf þannig að fleiri fái tækifæri til að taka þátt og njóta
- Gera fjölmenningu hátt undir höfði með því að hvetja til og styðja við fjölmenningarviðburði af mismunandi toga
- Setja á fót Menningarsjóð í Árborg sem hefur það að markmiði að styrkja og styðja einstaklinga, frjáls félagasamtök og hópa í sveitarfélaginu með það að leiðarljósi að stuðla að öflugu og frjóu lista- og menningarlífi í Árborg
- Móta framtíðarsýn og finna raunhæfar lausnir fyrir menningarhús sem uppfyllir þarfir samtímans og styður við fjölbreytt menningarlíf í sveitarfélaginu
Fólkið á B listanum
Fjölbreyttur hópur einstaklinga sem deilir sömu framtíðarsýn fyrir Árborg.

Matthías Bjarnason
Tæknimaður og varabæjarfulltrúi

Ellý Tómasdóttir
Bæjarfulltrúi, verkefnastjóri og forvarnarfulltrúi

Arnar Freyr Ólafsson
Bæjarfulltrúi, framkvæmdastjóri og fyrirtækjaráðgjafi

Guðrún Rakel Svandísardóttir
Skólastjóri

Magnús Benediktsson
Rekstrarstjóri

Kristín Júlía Hannesdóttir
Sjúkraþjálfari

Árdís Lilja Gísladóttir
Grafískur hönnuður

Guri Hilstad Ólason
Ráðgjafi og starfsmaður sendiráðs
Aðrir frambjóðendur
Óskar Hróbjartsson
Fangavörður
Ólafur Már Ólafsson
Húsasmiður og bóndi
Ólafía Ingólfsdóttir (Lóa)
Eldriborgari
Þorvaldur Guðmundsson
Umsjónamaður fasteigna hjá HSU
Böðvar Arnarsson
Húsasmiður í slökkviliðsnámi
Erna Guðjónsdóttir
Tómstunda- og félagsmálafræðingur
Gissur Jónsson
Starfsmaður Umf. Selfoss
Íða Marsibil Jónsdóttir
Framkvæmdastjóri
Guðmundur Heiðar Ágústsson
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður
Sólveig Þorvaldsdóttir
Bygginga- og jarðskjálftasérfræðingur
Ragnar Geir Brynjólfsson
Organisti og fyrrverandi kerfistjóri
Gils Einarsson
Fyrrv. formaður Suðurlandsdeildar VR
Kolbrún J. Erlendsdóttir
Formaður Suðurlandsdeildar VR
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir
Lögfræðingur og fyrrverandi þingmaður
Málefnabæklingur B listans
Lestu heildstæða lýsingu á stefnu og málefnum Framsóknar í Árborg fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2026.